|
UM KALDA VIÐURNEFNIÐ.
Viðurnefnið KALDI er komið frá minni æsku.
Þar sem karl faðir minn hefur viðurnefnið STORMUR þá þótti mörgum við
hæfi að synir hans hefðu líka sín og fengum við sitt nafnið hvor Bjarki
fékk LOGNIÐ og ég KALDI.
Í upphafi var ég kallaður STINNINGSKALDI en svo var það stitt af
skiljanlegum ástæðum niður í það sem það er í dag.
Nú er svo komið að farið er að framleiða bjór sem á að heita KALDI
þannig að spurning er hvort ekki væri rétt af þeim aðiljum sem standa að
þeirri framleislu að semja við mig um notkun á nafninu.
Hvað er kaldi samkvæmt veðurstofu sjá
hér.
Með kveðju og ósk um góðar stundir.
Kaldi & fjölskylda.
|
UM HEIMASÍÐUNA KALDI.IS
Heimasíðan kaldi.is hefur verið virk í nokkur ár eða frá 2304-2004. En
ég var með heimasíðu á öðru nafni áður.
Nú er byrjaður nýr tími þar sem ég hef flutt alla þjónustu frá símanum yfir til vodafone. Það er því í ljósi þess sem ég ákvað að tileinka þessa síðu áhuga mínum á tignarmerkjum allra þjóða þar sem það er búið að vera áhugamál hjá mér í langann tíma.
Ég mun að sjálfsögðu halda áfram að rita pistla um hin ýmsu mál en þau ritstörf munu fara fram á blogsíðu sem ég held úti á 1kaldi.blog.is mun ég skrifa þar inn eftir því sem ég nenni.
kveðja með von um góðan lestur
kaldi
|